Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Dagmar Sigurđardóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Er titluđ nemi í DV
  • Hjúskaparstađa: Á lausu..

Auglýsing

Leit

Leikur dagsins

Súrefni

10. ágúst 2008 klukkan 22:12
Geri þið ykkur grein fyrir því hvað það er gott að anda?

Að draga inn andan og fylla lungun af hreinu íslensku lofti er eitt það besta sem maður getur gert. Sérstaklega eins og loftið er í kvöld.Það er einhver leyndardómur í loftinu í kvöld. Súrefnið flæðir um allan likaman og manni líður ekkert smá vel...

Vaknaði í nótt og horfði á landsliðið sigra Rússa. Sá reyndar ekki allan leikinn en ég hlustaði á hann allann. Rosa flott hjá strákunum og vona bara að sigurgangan haldi áfram og þeir komist allavegana uppúr riðlinum, sýnist þeir vera einu íslendingarnir sem eru að gera eitthvað af viti á þessum leikum...allavegana hingað til..

Reyndi að læra eitthvað í dag fyrir EÐL403 prófið. Það gekk ekkert of vel.
Var síðan rosalega góð dóttir og leysti mömmu aðeins af í vinnunni svo gamla konan þyrfti ekki að standa í þessu í 12 tíma á sunnudegi. Tók nokkra tíma fyrir hana. Það var ágætt.

Núna er ég bara að bíða eftir að baðherbergið losni svo maður komist í sturtu, tók smá jogg núna áðan til að reyna að ná harðsperrunum úr fyrir bootcampið á morgun. Vonandi að það hafi tekist. Bootcampið á föstudaginn var ekkert lamb að leika sér við, fór næstum því að grenja og hélt ég myndi deyja nokrum sinnum. Farin að kvíða fyrir tímanum á morgun. Svo gerir einar jóns manni ekkert lífið auðveldara með sínum æfingum og því skilirði að maður þurfi að skila matardagbók einu sinni í viku...

Kristófer Jónsson stórvinur minn gladdi mig aldeilis í gær. Hann var svo góður að gefa mér boðslykil á deil.net sem ég er búin að vera að leita af í langan tíma. Núna er ég bara a fullu að niðurhala myndum og þáttum og einstaka lagi svona mér til skemtunar.

Síðasta vikan í vinunni að byrja á morgun. Hlakka nú allveg smá til að hætta í vinunni. Veit samt ekkert hvað bíður mín í haust. Reikna ekki með að komast í MS og veit ekki með FB..

"Ættli maður taki Hilmar á þetta" eins og Arnar myndi orða það...haha :)

En já..það þarf bara að koma í ljós..

Ég mæli með að þið skellið ykkur út í kvöldloftið og andið smá...

Dagmar Sigurđardóttir

Jććććja..

06. ágúst 2008 klukkan 22:19
Já nú er fyrsta þjóðhátíðin min liðin og var það æðisleg upplifun, það er varla hægt að segja hvað stóð uppúr því það var allt svo skemmtilegt..

Við mættum á föstudagskvöldi og það var byrjar að týna úr herjólfi, við héldum að töskunar okkar hefðu gleymst því þær ættluðu aldrei að koma útúr gámnum loksins komu þær og það var komin svarta myrkur. Við redduðum okkur í dalinn með bekkjarbílnum og ættluðum að byrja að tjalda, sáum varla handa okkar skil og auðvitað voru öll bestu tjaldplássin búin. Við enduðum á að tjalda frekar framarlega, nálægt litla sviðinu...

Það var skellt sér á djammið og dansað til 5 og þá farið að sofa í tjaldinu góða..
Vaknað og skellt sér í sund og svo eitthvað sem ég man ekki....svo var bara djammað og dansað af sér rassinn..

Nenni ekki að telja allt upp sem gerðst en við komumst heilu og höldnu heim eftir 8 tíma seinkun á flugi...við komumst þó heim :D


En já...fyrsta inniæfingin í gær með einari jóns og það var ekkert grín skal ég segja þer...hélt að ég myndi deyja í fyrstu æfingunni...
og ekki skánar þetta...fyrsta bootcamp æfingin í dag og það var dauði!
Nú er stefnan sett á það að æfa 6-7 sinnum í viku frammað æfingaferð þannig að þetta verður erfiður mánuður..

En já..núna er fysta markmiðinu minu náð...búin að missa 7 kg í sumar og er næsta markmið komið á blað...það verður ekki upplýst fyrren seinna samt..:P

Æji ég hef eiginlega ekkert meira að segja...
Bæjó :)
Dagmar Sigurđardóttir

Kaldar tćr..

28. júlí 2008 klukkan 19:56
Vá mér er svo kalt á tánum að ég er að deyja...
Byrjuðum að æfa aftur í dag eftir ca mánaðar pásu. Auðvitað var grenjandi rigning á meðan á æfingunni stóð og auðvitað vorum við úti. Hlupum nokra kílómetra og svo í þunga bolta úti á fótboltavelli...núna lykta ég eins og í gamla daga þegar maður var að koma heim af blautum fótboltaæfingum...ullabjakk...enda er ég á leið í sturtu.
Gaman að byrja fyrstu æfinguna á því að fá þessa líka risa blöðru á hælinn og vera næstum því farin að grenja í hverju skrefi, búin að vera að æfa á fullu í WC og ekkert fundið fyrir þessu...þetta kemur bara þegar maður hleypur úti eða eitthvað...

Byrjum svo í Bot Camp í næstu viku, eftir versló...það verður svaka fjör vonandi...haha ef ég verð ekki í topp formi í vetur verð ég ekkert smá fúl..ekkert lítið sem maður er búin að leggja á sig og á eftir að gera..

En nú styttist víst óðum í Eyjar og er spenningurinn orðinn óbærilegur fæ gæsahúð þegar það eru spiluð þjóðhátiðarlög í útvarpinu og jafnvel þegar útvarpsmennirir minnast á þjóðjátið...svona getur maður verið klikkaður..

Árný kemur heim á miðvikudaginn og hlakkar mig ekkert smá til ættlum að hittast um kvöldið og plana eyjar..hahaha...ég er svo plönuð manneskja...er samt að fara til eyja og er eiginlega ekki búin að plana neitt..þetta verður etthvað skrautlegt...

Við framstelpurnar kepptum í strandhandbolta um helgina og mættum í heimagerðum súpermanbúningum og auðvitað unnum við búningakeppnina...stóðum okkur lika mjög vel á móti þessum strákaliðum...töpuðum samt öllu.. getið skoðað myndir á myspace.com/daggalitla
Svo var lokahóf á Apótekinu...þetta endaði eitthvað skrautlega..


Svo vil ég þakka öllum þeim sem mundu eftir afmælinu minu á föstudaginn og takk fyrir allar kveðjurnar..

En jæja...ættla að hoppa í sturtu..
Dagmar Sigurđardóttir

Flughrađi..

15. júlí 2008 klukkan 20:19
Jæææja...
Minn heittelskaði bíll komst ekki í gegnum skoðun og var límdur á hann grænn og viðbjóðslegur miði...eina sem var að voru að það voru engin stöðuljós, lýsing aðalljósa var röng, dempararnir að aftan lélegir og bremsuklossarnir ónýtir!..mér fynnst þetta litlar sakir og ekki verðskulda þenan sjálflýsandi horbjóð...

Þessu var reddað á innan við viku og gerði kellan það ekki bara sjálf með smá hjálp frá vini. Djöfull var ég klár, það get ég sagt ykkur..og ég hef aldrei verið eins skítug á höndunum guð minn góður! haha...en þetta var rosa fjör og rosa gaman að geta hafa gert þetta aaaalveg sjálf!! :D:D

En að öðru mikilvægara, ÞJÓÐHÁTIÐ!
Breytt plön eru í gangi vegna þjóðhátiðar, Þórey og fjórar aðrar Framstelpur eru á leiðinni á HM í Makedóníu með U-20 liði Íslands þannig að mig vanntaði ferðfélaga...hvern talar maður við sem er til í allt sem kallast Djamm??....nú auðvitað Árný!....ég hringdi eitt langlínusímtal til DK og fékk loks samband við árný sem samþykti þetta á staðnum og allt klappað og klárt... Árný kemur heim 30.Júlí og við eigum herjólf 1. ágúst...þetta verður svo svaaaaaaakalegt!! Hlakka OF mikið til! Búin að tala við Sigga storm og panta glampandi sól og bongó blíðu!

Síðasta helgi fór ekki í neitt nema eitt smá Framdjamm sem endaði á Vegamótum þar sem var dansað eins og maður ætti lífið að leysa og rakst maður á nokkra gamla kunningja sem gaman var að hitta aftur...svo er stefnan sett á strandhandboltamót eftir 2 vikur og það er víst klikkað fjör, beilaði á þessu í fyrra þannig að þetta verður tekið með trompi..enda er það haldið daginn eftir afmælið mitt þannig að þetta verður afmælisdjamm haha...reyndar er ég lika kannski að fara að skella mér á smá ættarmót í Hrútafjörð þá helgi...þetta kemur allt í ljós þegar nær dregur..

Vikurnar liða hjá eins og ég veit ekki hvað og maður gerir ekki neitt nema að vinna, æfa og sofa eins brjálæðingur, ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur og getur alltaf lagt sig haha...þetta fer að vera vandamál..

En jiii þetta er farið að verða ansi langt..
Gott í bili :D
Dagmar Sigurđardóttir

Shiii..

02. júlí 2008 klukkan 22:25
Jæja komin miðvikudagur og vikan bara líður hjá..
Lítið að gerast nema vinna, æfa, sofa..

Er að taka svo svakalega á því þessa dagana að ég get varla gengið útaf harðsperrum og rétt i þessu átti ég erfitt með að þvo mér um hárið því ég var aaaaallveg búin í höndunum eftir lyftingar...eins gott að þetta komi vel að notum á næstunni..

Fer núna 5-6 sinnum í viku í World Class og er gott að komast aðeins í burtu frá Framheimilinu þar sem maður er nánast búin að eiga heima síðustu 2 vikurnar.
Maður fynnur mikin mun á sér enda búin að léttast og auka þolið...held að þetta sé allt á réttri braut...

Hvað vinnuna varðar erum við Þórey bara útum allt. Erum í lyfjamerkingu, almennri merkingu og svo í týnslu og er ég fýla fjölbreytileikann í þessu starfi...þetta er ágætt..

Sumið er komið á skrið og ég er að fýla það...Þjóðhátið í Eyjum nálgast óðfluga og er maður búin að tryggja sig ut með herjólfi og svo heim með flugi til Reykjavíkur...gerist varla betra..á bara eftir að kaupa miðann og gistingin er í vinnslu...shiii hvað mig hlakkar til..

En já...ættlaði bara aðeins að lata heyra í mér..

kv. Dagmar
Dagmar Sigurđardóttir

A new begining..

29. júní 2008 klukkan 23:33
Já...langt síðan að maður hefur bloggað og margt hefur gerst á þeim tíma..

En lífið heldur áfram og maður þarf að lifa því..

Er búin að vera klikkað dugleg að æfa og stefni ótrauð áfram..er að komast í betra stand og maður er farin að fynna mun á sér.

Sumarið stefnir í ekkert nema gott og mig hlakkar mikið til alls sem bíður manns..

Ættla að fara að blogga aftur...kem með meira seinna...

kv. Dagmar
Dagmar Sigurđardóttir

Afhverju?

03. febrúar 2008 klukkan 17:33
Afhverju þolir maður ekki sumt fólk þótt að maður þekki það ekki neitt og hafi jafnvel aldrei talað við það né það hafi gert manni neitt illt??
Afhverju getur maður ekki hunsað það og látið það ekkert fara í pirrurnar á sér þótt að það hagi sér asnalega og jafnvel ekki á við sinn þroska?

Ég las það á netinu að það væri afbrýðisemi. Ég trúi því ekki.

Það er ein stelpa í skólanum mínum sem er með aflitað hár, í of fleignum bolum, hagandi sér barnalega og gerir allt til að fá athyglii strákanna í bekknum sínum. Hún fer allveg svakalega í taugarnar á mér.
Þíðir það ss að mig langi að vera eins og hún... Nei veistu...ég hef engan áhuga á að fólk tali um mig og aðalega um það hvað ég er asnalega.

Þetta er ábyggielga finasta stelpa og allt það en sjææse, svo við höffum það á hreynu þá langar mig ekkert að vera eins og hún. Bara nokkuð sátt við sjálfa mig eins og ég er.

Langað bara að skrifa smá.
Ef einvhern veit svarið við þessari pælingu, endilega kommenta :)
Dagmar Sigurđardóttir

Gleiđilegt nýtt ár :)

02. janúar 2008 klukkan 21:00
Já ég vil byrja á að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og ég þakka fyrir það gamla.,..
Mér líst vel á nýja árið og ég vona að það eigi bara eftir að verða betra...

Ég hef sett mér markmið sem ég ættla að ná á árinu...ég læt ykkur kannski vita seinna hvernig það gengur...ekki allveg strax. En ég er hörð á því að láta þetta ganga..

Jólin mín voru góð, var í mat hja mömmu og pabba á aðfangadag og opnaði pakkana með þeim og var ekkert smá ánægð með gjafnirnar sem ég fékk. fékk t.d síma frá Davíð og gjafabréf frá mömmu og pabba.
Jóladagur var bara tjill og næsheit með Davíð hérna heima, fórum í mat til mömmu og pabba í hádeginu og svo í purusteik til sigrúnar um kvöldið.
Jólin fóru mikið í það að horfa á Grey's og það var ánægulegt.
Einnig var eitthvað unnið í jólafríinu sem var ágætt.

Á gamlárs vorum við í mat hjá Sigrúnu mömmu Davíðs og fengum við Kalkún sem við erum búin að bíða eftir allt árið, það var ógó gott, síðan seinna var haldið í Kóngsbakkann þar sem horft var á skaupið og skoðtið upp flugeldunum.
Eftir það var farið heim og krakkarnir komu og við skemmtum okkur langt eftr kvöldi..




Í dag var ég að lesa fréttablaðið og þar er frétt um að leita eigi að kaleka krists á kili..ég skil ekki hvernig þetta getur staðist, ég meina...rökin sem þau eru með að er að málverk eftir da vinci af síðustu kvöldmáltíðinni sé dulmál og dulmálssérfræðingar eru búnir að ráða þetta og segja að þess sé á hálendi íslands. Því að línur í málverkinu matcha við hæðalínur af einhverjum hól á kili eða eitthvað...og meira er að það er búið að fá leyfi fyrir þessu og þetta á bara allt að fara í gang...Þvílik viltleysa!! Ég skal éta hattinn minn ef þetta fynnst...hahaha

Einn dagur eftir í vinnunni og svo er bara skólinn..
Held að þetta sé ágætt í bili..
Dagmar Sigurđardóttir

Jólapróf

04. desember 2007 klukkan 14:59

núna eru blessuðu jólaprófin komin og það þíðir ekkert nema blogg frá Dagmar Sigurðardóttur. Ég fer í mitt fyrsta próf á morgun og mun það vera enska.
Þessvegna er ég búin að eyða öllum morgninum í það að glósa orðalista og lesa yfir texta. Ásamt því reyndar að setja í þvottavél og vaska aðeins upp. Restin af deginum fer svo í það að renna aftur yfir heila klabbið og skella sér svo á video-fund, æfingu og aðra æfingu...

Á föstudaginn er svo eðlifræðipróf, þannig að allur morgundagurinn ásamt fimmtudeginum fer í það að reina að reikna eitthvað ruggl sem ég kann ekki aaaallveg nægilega vel...ásamt því að keppa.

En ég ættlaði að henda inn jólaóskalistanum 2007 hérna inn þannig að gjöriði svo veeeel..

Jólaóskalistinn 2007

1. Hálsmen - Eitthvað fallegt og sætt sem ég get gengið með dagsdaglega

2. Föt – sérstakelga buxur

3. Skó – einhverja spari

4. Ilmvatn – Cristina Aquilera eða hvernig sem það er skrifað

5. Ipod – haha sénsinn

6. Sólgleraugu – einhver allvöru

7. Ljósakort - :P

8. Gott sjampó og næriingu.

Æji það var svo fullt meira sem e´g man ekki í augnablikinu...eg vissi að ég hefði átt að skrifa þetta niður!...

En ég nenni ekki meira...bæææææ

Dagmar Sigurđardóttir

Mánuđur

26. október 2007 klukkan 16:24
Já nú er komin mánuður síðan að ég bloggaði síðast...

Nú er stefnt á stórt blogg..

SHHHIITT þarf að fara á æfingu..

bæ :)
Dagmar Sigurđardóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur